Friday, October 29, 2010

Ég sá þennan keðju status á Facebook. Einstaklingurinn sem setti þetta inn verður ekki nafngreind/ur.

"Athygliverðstaðreyndum október 2010. Hann á fimm föstudaga, fimm laugardaga og fimm sunnudaga, allt í sama mánuðinum. Þetta gerist með 823 ára millibili. Þetta eru peningapokar. Settu þetta sem status hjá þér og þú eignast pening innan fjögurra daga segja kínverst feng shui fræði. Sá sem stoppar.........keðjuna upplifir.....ekkert samkvæmt......... fræðunum."

Þetta er vissulega athyglisvert en ekkert fræðilegt.

Í Gregoríska dagatalinu sem flestar vestrænar þjóðir byggja tímatal sitt á eru 12 mánuðir. Því má skipta niður í 4 deildir sem við köllum árstíðir (Vetur - nóvember, desember, janúar / Vor - febrúar, mars, apríl / Sumar - maí, júní, júlí / Haust - ágúst, september, október).
Hver mánuður hefur annað hvort 30 eða 31 dag nema febrúar sem hefur annað hvort 28 eða 29 daga sem fer allt eftir því hvort það sé hlaupár eða ekki. Staðreyndir hér að ofan segir að október 2010 hefur fimm föstudaga, fimm laugardaga og fimm sunnudaga, og að það gerist ekki nema á 823 ára fresti og viti menn, hefur þetta rétt fyrir sér.

En það er líka kolvitlaust.

Í þeim mánuðum ársins sem hafa 31 dag eru 3 dagar í röð sem koma fyrir 5 sinnum í mánuðinum (5 fös, 5 lau, 5 sun. o.s.frv.). Þetta gerist 7 - 8 á ári.
Milli 2000 og 2009 til dæmis kemur þetta fyrir í desember 2000 (31 dagur í þeim mánuði), mars 2002 (31 dagur), ágúst 2003 (31 dagur), október 2004 (31 dagur), júlí 2005 (31 dagur), desember 2006 (31 dagur), ágúst 2008 (31 dagur) og maí 2009 (31 dagur).

En hvað með bara október? Gerist þetta bara 1187 og 2010? Nei.

1971 / 1976 / 1982 / 1999 / 2004 / 2010 / 2021 / 2027 eru bara fá ártöl en það sýnir samt að þessi feng shui fræði er kolvitlaus.

En hvað ef einhver setur þetta á Facebook og vinnur kannski lottóið upp á 50 milljónir fjórum dögum seinna?

Post-hoc ergo propter hoc, sem á íslensku þýðir "eftir þetta, þess vegna þetta" er rökvilla sem felur í sér fylgni sé vegna orsakatengla. Það merkir að tengdar séu tvær atburðarásir og haft sem að A hafi haft áhrif á B. Í þessu tilviki er reynt að tengja saman feng shui fræðina og að eignast peninga. En A hefur engin áhrif á B. Með þeim rökum er hægt að mynda svipaðar setningar eins og:

"Ég steig á kakkalakka og drap hann. Hundurinn minn varð fyrir bíl tvem dögum seinna."
"Haninn galar fyrir sólarupprás. Þess vegna veldur hanagalið sólarupprás."

Það eru óteljandi ástæður af hverju einhver skyldi eignast peninga í framtíðinni. Kannski finnuru seðil eða krónu í götunni, kannski gefur vinur þinn eða ættingi þér pening. Kannski finnuru pening í buxnavasa fyrir tilviljum.
Setningin gerir einnig aðra villu þar sem hún greinir ekki frá hversu mikill peningur er fólginn í því að setja þetta inn á Facebook. Það gæti allveg verið bara ein króna. Það gæti verið hundrað kall. Það gæti verið 100 milljónir. Lítill peningur er samt peningur.
Að segja að einhver vinni eitthvað innan ákveðins tíma passar líka ekki vegna þess að það gerir kröfur til þess að "spádómurinn" gangi upp. Í þessu tilviki eru fjórir dagar gefnis sem er nógu mikill tími í að eignast pening.
"Staðfestingartilhneiging er sálfræðilegt hugtak sem felur í sér að túlka upplýsingar svo þær staðfesti fyrirfram mótaðar hugmyndir, og að hundsa upplýsingar og útskýringar sem stangast á við fyrri skoðanir."

Hugsanlega setur fólk þetta inn á Facebook vegna fjárhagslegra erfiðleika. Það á ekki peninga og vantar eða þarf smá og fer hvaða leið sem er til að græða smá.
Til eru aðrar leiðir til að eignast pening en að setja svona setningar inná samskiptasíður. Hægt er að fá lánað eða leita sér að vinnu.

Heimildir:
Dagatalið í tölvunni